|
|
01.06.2009 19:20:40 / Harpa
horfi á fréttir á rúv...aðalfréttin er innbrot enn á ný. muna læsa gluggum og hurðum þegar farið er að sofa. það er ekki spurning að maður er aðeins "paranojaðari" hér í borginni hvað innbrot varðar og það á jarðhæð líka.
en ég tek þetta með stóískri ró og bíð núna spennt eftir því burgers fara á nýja kolagrillið. i luv burgers..jee
ný skapandi vinna og dalæ lama á morgun. heilagur og spennandi dagur.
klárt lögbrot að nota gamlar myndir af forseta íslands í auglýsingaskini? klárt lögbrot að útsetja og spila þjóðsönginn í jazz-stíl? maður spyr sig... ég held ég sé frekar líbó hvað þetta varðar.
»
19.11.2008 14:00:15 / Harpa
ég er ekki að fara þangað..hins vegar langar mig vestur á land, ekki núna þar sem það er vont veður og örugglega margir vegir ófærir þar vegna snjós og byls..en það er allt í lagi, ég stefni þangað næsta sumar eða um páskana á aldrei fór ég suður...ég fer oft suður þegar ég keyri reykjanesbrautina...pínu suður og pínu vestur...kannski pínu austur til að komast að reykjanesbrautinni..
ég horfði á be kind rewind í gær..thelma bara pínu af því að hún sofnaði, hún missti ekki af miklu..mynd sem reynir pínu að vera eins og napoleon dynamite en feel good drama um leið..skrýtin blanda sem ég náði ekki..sumt fyndið annað ekki
jólin á næsta leyti, búin að fá einn nýjann jóladisk í safnið sem mun spilast fram að jólum þegar það verður skreytt og bakað...hugljúfir blásturstónar sem pakka manni inn í bómul..það er nauðsynlegt í myrkrinu og vonda veðrinu..
»
09.10.2008 18:19:13 / Harpa
já það er staðfest að ég er ei lengur í Berlin. Það er líka ágætt, ég fíla það að vera hér é Keilisheiði með slökkt að fjármála fréttum og kveikt á rólegri haustmúsík. Það er ánægjulegt að hér er farið að grána snemma dags og kósýherlegheitin smuga sér inní sálartetrið.
ég ætla ekki að tala um efnahagsmál hér á opinberri vefsíðu minni. en ef þið viljið ræða þessi mál við' mig þá endilega hringið í blablabla-blablablabla. nýtt númer hjá nýju símakerfi, Bla. Þetta er kannski ágætis markaðshugmynd..samkeppni við Tal. Hver er eiginlega munurinn á því að Tala og Blabla í síma. Voða lítill.
er það jákvætt að slúður fréttir af "fallega og fræga fólkinu" hafa minnkað með eldgosi fjármálafrétta?
hvað veit ég hvað ég geri við fimmtudagskvöldið mitt. eins og er er ekkert plan, kannski fæ ég mér karamellu sleikjó og kók í dós. einkar óhollt, en alveg afskaplega gott. svona einskonar bragðlaukaparty. það er enginn mótfallinn party-um.
jæja, farin á salernið.
bið að heilsa
»
19.07.2008 13:03:56 / Harpa
ja her er eg i berlin og tad rignir...eg fagna henni tvi a spani verdur heitt og tvi vil eg njota hennar medan hun er...sol er aedisleg en hitinn er leidinlegur..
berlin er aedisleg...tad er ekki haegt ad segja meir..
tonleikar a morgun og rom daginn eftir daginn a morgun og svo verona...tad verdur matarveisla alla naestu viku...verst ad thelmu verdur ekki med, hun fer til NY i fimm daga en kemur svo aftur as the girlfriend ekki nanny...studstud
jaeja aetla ut i rigninguna ad upplifa meiri berlin...fae ekki nog
»
09.07.2008 00:34:51 / Harpa
Allt er þegar þrennt eins og maðurinn sagði...upplifði þriðju leiðinda strætóreynslu mína í gær. Fyrstu tvö skiptin missti ég af þeim, annars vegar vissi ég ekki hvar ég átti að standa og stóð því á umferðarmiklu horni í þeirri von að sjá strætóinn koma úr fjarlægð og getað hoppað á hann. En svo brá fyrir fallegur fugl og ég fylgdist með honum fljúga hjá og þar á eftir fylgdist ég með strætó sigla fram hjá. Og hins vegar þegar ég vissi heldur ekki enn hvar strætó stoppaði og rölti á algengastu stoppistöðina (hafði séð strætó stoppa þar áður) og beið þar. Eftir nokkra bið sá ég bílinn koma úr beygju í svolítilli fjarlægð frá mér og beygir í átt FRÁ mér. Svo eru það leiðindi gærdagsins. Fór með bílinn minn í smurningu og þurfti því að taka strætó heim, í þeirri trú að strætóinn keyrði upp á völl og ég kæmist heim. Náði honum eftir um korter eftir að ég skilaði af mér bílnum og sat sallaróleg þar sem nokkur spölur er upp á völl frá smábátahöfninni. Til að gera langa sögu stutta og lestrarvæna þá fór helv... bíllinn ekkert uppá völl og ég drattaðist út hjá Bónus og hóf gönguna heim. Ég var reyndar alveg sátt með það að “neyðast” í smá gönguferð, þar sem það hafði verið á planinu hjá mér í nokkra daga. En þegar ég nálgast Vallarheiði, fyrrum hervöll, þá sé ég að gangan verður eilítið lengri en ég bjóst við. Af hverju? Af því að svæðið er enn girt ljótri hergirðingu! Ég þurfti að þræða girðinguna þangað til ég komst að smá rifu og mikilli umferð bíla (ekki strætó) og komst uppá þetta “fyrrum” hersvæði.
Með meðalgreind mína að vopni fluttum ég og Thelma uppá þetta gamla hersvæði með fögnuð í hjarta yfir lágri leigu og að vera loksins orðið herlaust land. Með tímanum höfum við komist að því að svo er ekki, síður en svo. Hér um daginn settist að hér frönsk flugherdeild með það verkefni að vernda land og þjóð, vernda hvað? Hver vill okkur vont? Hvar eru vondu karlarnir með byssurnar? Af hverju er enginn búinn að drepa neinn með jarðsprengju? Af því að það vill okkur enginn neitt, heimurinn veit varla af okkur, vill bara nýta sér allt það góða sem við eigum, náttúru og hugvit. Og þar með við situr. Ef það ætti að vernda e-ð þá væri það heimili Geirs H. Haarde. En já, það sem þessi franska herdeild náði að afreka á þessum nokkrum vikum var að vekja íbúa Vallarins langt fyrir sólarupprás með tilheyrandi gargi í þotum þeirra, æfa flugtækni sína og reikna út hraunið..því þar hljóta vondu karlarnir að vera. Og þetta er nú ekkert einsdæmi, Varnarmálaráðsskrifston er nú með aðsetur hérna og skipuleggur komu næstu herdeildar.
Ég og Thelma fögnuðum því að Keilir gaf það út í byrjun starfseminnar að þeir ætluðu að vera fyrstir með svokallaða “græna háskólavelli”. Með meðalgreind mína aftur að vopni þá hugsaði ég; “frábært, þá er hægt að endurvinna almennilega...þar sem það er nú ekki í boði hér á Suðurnesjum, nema fernur og dagblöð”. En grænt í þeirra huga var þá eflaust að leyfa fólkinu í grænu herbúningunum sínum að vera hér meðal frjálslynda háskólafólksins, því það setur nú fallegan grænan blæ á þorpið. Er það ekki það sem unga fólkið vill...allt grænt. Kannski við ættum bara að fara að koma okkur áður en fólkið í grænu göllunum bankar uppá skreytt með öllum vélbyssum heims og hreki mann úr húsinu því herinn væri nú alkominn til að vera. Hvert á ég þá að fara?
»
30.06.2008 22:36:58 / Harpa
undur og stórmerki áttu sér stað í gær þegar ég og thelma settumst fyrir framan imbann og horfðum á úrslitaleik EM. við vorum sammála um það að betri fótboltaleik höfum við séð þó þeir hafi ekki verið margir í gegnum tíðina. pizzan var ekki langt undan en bjórinn fékk ekki að vera með.  en hinn merki atburðurinn er auðvitað náttúru tónleikarnir á laugardaginn. stuð stuð stuð í alla staði og mun ég lifa lengi á þessum degi. tvær strærstu hljómsveitir landins og heims samankomin á grænum velli (farin að tala fótboltamál?) og sameina krafta sína að betri orku. það voru ekki margar myndir teknar á deginum...ekki hjá mér allavega en þessi stendur klárlega uppúr.  Gummi, unnusti Valdísar brass, og Damian sound-making kall ég og thelma ákváðum að taka engar tölvur með á þennan túr sem er í uppsiglingu og verður þvi lítið bloggað....ekki það að ég sé búin að drulla einhverju útúr mér sl. mánuði. well, ætla að enda þetta með útsýni eins morguns hér á Vallarheiðinni
»
18.02.2008 13:10:57 / Harpa
hæææ....er ekki að blogga..eins og þið sjáið...bendi á www.nikkiblove.blogspot.com ... þar er allt að gerast.. bið að heilsa
»
03.02.2008 06:19:32 / Harpa
þegar ein belja þarf að pissa, þurfa allar að pissa...svona hljómar eitt gamalkunnt orðatiltæki. en hér í perth er það þegar ein hjón gifta sig, gifta sig allir. fór ekki i langan göngutúr í gær en sá 2 pör af nýgiftum hjónum og svo annað að tékka sig inn á hótelið í gærkvöldi. ekki nóg með það, þegar ég mætti niður í lobby í hádeginu þá var allsherjar brúðkaupskynning, þarna voru semsagt nokkur tilvonandi brúðhjón að kynna sér allt það sem þarf að hafa í hinu fullkomna brúðkaupi. crap.... síðastu BDO tónleikarnir í kvöld. tilfinningaþrungin kveðjustund mun örugglega einkenna kvöldið. allir grenjandi og á trúnó, uppskrift að góðu teiti. get ekki beðið. kannski ég nái einhverju dýrmætu leyndói sem ég get selt einhverju slúðurblaðanna og fengið fullt af pening fyrir. að því að ég er mjög peningagráðug kona. crap... það er heitt hér í perth og eg er í langermabol. björk jr. benti á mjög áhugaverðan punkt í gær, ef þið setjið saman perth og airport saman, perthairport og takið það aftur í sundur þá fáið þið pert hairport. það er mjög fyndið. á morgun liggur leiðin til bali, þá hitti ég thelmu mína og þá eru allir glaðir. það er líka sól á bali og þá eru allir alltaf glaðir. kannski ég leigji mér vespu og læt hárið flögra um í vindinum meðan ég burra meðfram ströndinni. það er svo mikið ég. bið að heilsa í bili.
»
26.01.2008 04:53:44 / Harpa
já það er australia day í dag, semsagt þjóðhátíðardagur ástrala.
hann er nu ekkert ósvipaður og heima, fólk safnast saman á ákveðnum
stöðum með blöðrur og fána og hefur gaman, það er meira að segja
fornbílasýning....en gaman. lítið sem ég ætla að gera til að fagna
þessum degi annað en að vera til og fara á tónleika í kvöld, joanna
newsome i óperuhúsinu. það er gaman.
ég er að drekka vatn sem heiti mount franklin og á því stendur:
Drinking plenty of pure 'Mount Franklin' will keep you hydrated and
put you in a more positive frame of mind. ég er hætt að drekka
annað vatn, þetta vatn er svarið við öllu.
fórum og gerðumst almennir festivalgestir í gær og ég hef sko
engu gleymt síðan á hróa 2006.

melbourne á morgun. ég held að ég sé að farað upplifa draum
allra sápuóperuunnenda, neighbours tour. hverjum hefur ekki dreymt
um að keyra um á ramsay street, skoða the coffe shop og lou's
pub.
svo bíð ég spennt eftir Bali. góðir hlutir munu gerast á bali
með útrás nikkibadlove. sól sól skín á mig ský ský burt með
þig.....
bið að heilsa í bili.
»
21.01.2008 13:28:16 / Harpa

Almennt flugvalla ástand 
Mark og Erla....nörd...en það er töff að vera nörd 
Ofurhugarnir á brúnni 
Básúnukassinn minn fékk góða viðbót á búkinn sinn.. Er stödd í Sidney þessa dagana, það er asskoti góð orka og góðir straumar hér við höfnina þar sem óperuhúsið er í öllu sínu veldi. ég er líka sátt við sidney hvað hitastig varðar, enginn 30°C hiti og ekki 50% raki...jeee. ástralir eru sólbrunni bretar. það er svolítið vont að horfa uppá þetta ónáttúrulega ástand, að hvítt kyn með viðkvæma húð skuli búa við þessar sólar-óson-aðstæður. enda greinast um 400þús ástralir með húðkrabba á ári og sólarvörn undir 20 ekki seld hér. þetta er karmað sem þeir fá í hausinn fyrir frekjuna hjá forfeðrum þeirra.... hætt öllu óþörfu hangsi á netinu og farin í bælið....kannski einn office þáttur fyrir svefninn, ég held það.
»
17.01.2008 21:45:52 / Harpa
já einmitt, komin yfir hálfan hnöttinn...hann er ekkert svo stór þessi hnöttur, bara mikið af fólki. en ég og mitt samstarfsfólk erum komin í sólina Down Under. Vorum að ræða það hér um daginn hvað það er virkilega skrýtið...og ekki skrýtið að það sé lítið bretland hér langt niðri. og ef einhver íslendingur ætti maka í nýja sjálandi þá gætu þau t.d. hisst "á miðri leið" sem er þá í Hong Kong. nokkuð merkilegt...og annað merkilegt er að (nú kemst upp um mig hvað ég fylgdist vel með í eðlisfræði) vatnið í vaskinum og klósettinu fer "öfugan" hring niður pípurnar. gaman að fylgjast með því þegar búið er að pissa og þvo sér um hendurnar. sumar gerðust svo djarfar í gær að láta sig falla af brú fastar í heljarinnar teygju. ég var ekki ein sú djarfa, en ég kalla mig djarfa að hafa farið með þeim alla leið á stökk pallinn. score! þetta er víst þjóðaríþrótt nýsjálendinga og uppruna sinn hér í NZ. meðan á stökkunum stóð yfir þá var mér hugsað til þjóðhetjunnar Arne Århus sem allir íslendingar eiga að kannast við af skjánum sem stökk og adrenalín hetju. hann er vístur hættur öllu bulli og sestur að með konu og börn. keypti mér nyja radiohead diskinn...hann er ansi góður. bið að heilsa í bili
»
02.01.2008 20:07:36 / Harpa
komin á nýjan stað á nýju ári...en engar nýjar buxur. held ég þurfi ekki nyjar buxur í bráð, þær flæða hjá mér útúr skápunum. það eina sem ég þarf að gera er að minnka bumbuna svo ég geti notað þær allar...hehehehe. ný bumba á nýju ári. það verður allavega ný hárgreiðsla á nýju ári. hef ákveðið að láta lubbann síkka svo um munar...ég verð með flögrandi hár útum allar trissur á ströndinni í sumar. spurning um að skrá sig á einhverja sjampó model skrifstofu. það er algjör draumur í dós. sit við eldhúsborðið í nýja húsinu mínu og bíð spennt eftir kvöldmatnum sem mallar í ofninum. en hvað það er fær enginn að vita. hernaðarleyndarmál sem varlega verður farið með. 
fyrir ári síðan. sætar
»
07.12.2007 21:44:54 / Harpa
já góðan daginn, um leið og ég fer af klakanum þá byrjar að snjóa og ég fer í sól. samkvæmt hinum venjulega vestræna hugsunarhætti þá ætti ég að vera glöð...en ég er bara smá fúl, ég væri alveg til í snjó, nenni ekki sólinni. en hvað um það. við erum komin til Mehíkó, tónleikar á morgun á sjálfum afmælisdeginum. stuð. á morgun mun ég skríða uppúr táningskassanum og geng inní konublöðruna. enga kassa, takk fyrir. ég ætla að búa mig undir rosalegar breytingar, það mun gerast e-ð rosalegt. eflaust ekkert veraldlegt en ákveðinn þroskaþröskuldur sem ég yfirstíg á morgun. það verður spennandi að upplifa tímamótin sem munu eiga sér stað á morgun. akkurat nuna er ég að bíða eftir tortilla súpu sem ég pantaði mér fyrir stuttu, vona að hún komi innan skamms, við erum að fara rétt bráðum. þá þarf ég reyndar að skófla í mig. ég hef þetta gott í bili, ég verð hér í gvadalahara fram á mánudag og þá liggur leiðin til LA.
»
26.11.2007 19:19:51 / Harpa
já hæ, nú er vika síðan ég kom heim og rúm vika þar til ég fer aftur. en það verður sem betur fer bara stutt og laggott rétt fyrir jólin. og þar sem ég í megachilli þá mun bloggið liggja niðri þar til eftir rúma viku. tjá bella, harpa
»
15.11.2007 04:28:53 / Harpa
komin til colimbiu og allt flæðandi i kókaíni...engir gifsveggir, heldur kókaínveggir, ekkert nammi i minibarnum, bara kókaín....nei djók við vorum semsagt að koma til colimbiu, klórbragð af vatninu, biluð sturta og vond tómatsúpa. crap. ég verð semsagt sveitt og svöng við komuna til íslands á mánudagskvöldið. ekki nema ég hefji allsherjar mótmæli og segi þessum col-hausum að sinna mér! það er kalt núna, en mér er ekki kalt af því að ég á svo massíva lama-peysu sem ég keypti mér í chile. hún mun verma mínar hjartansrætur þangað til ég kemst heim i hitann á íslandi...hehehe ég veit ekki hvort ég eigi að vera hrædd um líf mitt hér sunnan við miðbaug. rétt eftir brottför frá argentínu þá voru allsherjar óeirðir í buenos aires, þar sem við vorum, vegna verkfalls samgönguverkamanna. svo eftir brottför frá chile kom þessi svakalegi jarðskjálfti í n-chile, sem fannst reyndar vel í santiago þar sem við vorum. og við komuna i perú tóku á móti okkur brjálaðir aðdáendur sem hefðu allt eins getað étið okkur á staðnum. s-ameríka er röff. aðeins einir tónleikar eftir, hér í bogota. þeir eru á laugardaginn og á sunnudaginn hefst ferðalag lífsins sem færir okkur heim á klakann. það verður spennandi að sjá hvert ástand fólksins verður við lendingu í leifsstöð. ég held ég verði kát og meira en það. hef þetta gott í bili, fer sveitt að sofa og hef engar myndir því ég er í mynaverkfalli.
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|